Hér er sniðug hugmynd að því hvernig nemendur geta unnið með hrós sem aðrir hafa gefið þeim. Markmið vinnunnar er að byggja um sjálfstraust þeirra. Hrósunum er hægt að safna frá bekkjarfélögum, foreldrum eða kennurum. Að sjálfsögðu er ekki nauðsynlegt að fuglsformið sé gert eftir skapalóni, þar má leyfa sköpunargleði nemenda að njóta sín líka.