Á fundi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna með annað móðurmál en íslensku, sem haldinn var í dag, kom greinilega fram hversu mikilvægt það er að virða réttindi barna til að læra móðurmál sitt.
En eins og sannast í myndbandi, sem sýnt var á fundinum, er ekki síður mikilvægt að ná einnig góðu valdi á fleiri tungumálum.