Gullnu reglur kennarans

Rannsóknir nýsjálenska fræðimannsins John Hattie hafa vakið mikla athygli, enda eru þær líklega með þeim umfangsmestu sem um getur á þessu sviði. Þær spanna 18 ára tímabil, ná til fleiri en 250 milljóna nemenda og eru unnar upp úr rannsóknargögnum fjölmargra fræðimanna (meta- analysur). Markmið rannsóknar Hattie er að greina hvað hefur mest áhrif á nám nemenda í skólastofunum.  Meðal afraksturs rannsóknarinnar eru GULLNU REGLUR KENNARANS sem á íslensku hljóma eitthvað á þessa leið:

Þekktu áhrif þín á nemendur.

  1. Grundvallar verkefni mitt er að meta áhrif mín á nám nemenda minna og árangur þeirra.
  2. Námsárangur og mistök nemenda minna snúast um það hvað ég geri eða geri ekki. Ég er sá/ sú sem stýri breytingum.
  3. Ég vil frekar tala um nám en kennslu.
  4. Ég legg áherslu á endurgjöf. Námsmat snýst um áhrif mín á nám nemenda.
  5. Ég kenni með samræðu, ekki einræðu.
  6. Ég fagna áskorunum og læt það ekki eftir mér að segja; „ég geri bara mitt besta“.
  7. Það er hlutverk mitt að stuðla að jákvæðum samskiptum í skólastofunum og einnig meðal starfsmanna.
  8. Ég upplýsi alla um tungumál námsins. Ég er brennandi af áhuga og stuðla að vexti nemenda minna.

NKC

Færðu inn athugasemd