Að beiðni verkefnisstjóra hjá Landlæknisembættinu vekjum við athygli á:
Að námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í kennslu námsefnisins Vinir Zippýs verður haldið föstudaginn 19. september kl. 12:30 – 17:30 í Vesturgarði, þjónustumiðstöð Vesturbæjar á Hjarðarhaga 45-47 í Reykjavík.
Vinir Zippýs er námsefni sem er ætlað börnum á aldrinum 5-7 ára. Efnið miðar að því að efla félagsfærni ungra barna og getu þeirra til að skilja og tjá eigin tilfinningar, finna heppilegar lausnir á vanda og takast á við mótlæti.
Námsefnið er byggt upp af 6 námsþáttum sem hver inniheldur 4 kennslustundir. Kennslustundunum er lýst með nákvæmum hætti í vönduðum kennslugögnum sem fylgja námskeiði.
Námskeið og námskeiðsgögn eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráningarfrestur er til 12. september en vinsamlegast athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.