Í fyrirlestri sínum um viskuna bendir Schwarts á að mikilvægt sé að fólk efli með sér visku sína og dómgreind. Schwarts er ofarlega í huga mikilvægi þess að einstaklingar vegi og meti hvernig þeir geta gert það sem er siðferðilega rétt miðað við þær aðstæður sem þeir eru staddir í. Að mati Schwarts hættir fólki sem ætlað er að fylgja reglum í blindni til að tapa innsæi sínu og dómgreind og breytist það í einhverskonar leiksoppa sem upplifa sig áhrifalausa og efla ekki eigin dómgreind, innsæi og visku.